Gagnanotkun á milli tiltekinna Google-þjónusta innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)

Vegna laga um stafræna markaði (Digital Markets Act, DMA) sem taka gildi í mars 2024 hefur þú nýja valmöguleika varðandi það hvernig gögnum þínum kann að vera deilt á milli tiltekinna Google-þjónusta ef þú ert með búsetu innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Tengdar Google-þjónustur

Eins og er kann persónuupplýsingum sem snúa að notkun þinni á tiltekinni Google-þjónustu að vera deilt á milli Google-þjónusta í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar. Það veltur á fyrri ákvörðunum sem þú hefur tekið um persónuverndarstillingar þínar.

Frá mars 2024 þarf Google samþykki þitt til að tengja tilteknar þjónustur ef þú vilt að þær haldi áfram að deila gögnum hver með annarri og með öðrum Google-þjónustum eins og þær gera núna. Til dæmis gætu tengdar Google-þjónustur fært þér sérsniðið efni og auglýsingar sem eiga betur við þig, byggt á stillingunum þínum.

Google-þjónusturnar sem þetta hefur áhrif á

Eftirtaldar Google-þjónustur munu biðja um samþykki fyrir því að deila gögnum í ákveðnum tilgangi, til dæmis að sýna auglýsingar:

Aðrar Google-þjónustur sem ekki eru taldar upp hér kunna að vera með aðrar tenglastillingar sem heimila þeim að deila gögnum sín á milli í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar en það fer eftir stillingunum þínum.

Gögnin sem eru notuð

Hægt er að deila persónuupplýsingum sem er safnað um notkun þína á Google-þjónustum með öllum tengdum þjónustum. Þetta á við um:

  • Leit
  • YouTube-vídeó sem þú horfir á
  • Forrit sem þú sækir á Google Play
  • Tengdar upplýsingar, eins og um staðsetningu og tæki
  • Allar aðrar gerðir upplýsinga sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar

Notkun þessara gagna

Google notar gögn sem er deilt á milli tengdra þjónusta í þeim tilgangi sem lýst er í persónuverndarstefnu okkar, til dæmis til að:

  • Veita sérsniðna þjónustu, þar á meðal efni og auglýsingar, í samræmi við persónuverndarstillingarnar þínar
  • Viðhalda eða bæta þjónustur okkar fyrir alla
  • Öðlast betri skilning á því hvernig fólk notar þjónustur okkar til að tryggja og bæta frammistöðu þjónustanna
  • Í öðrum tilgangi eins og lýst er í persónuverndarstefnu okkar

Það sem þetta hefur ekki áhrif á

Ákvarðanirnar sem þú tekur um tengdar þjónustur hafa ekki áhrif á:

  • Tilgang okkar með notkun gagna
  • Persónuverndarstillingar þínar, til dæmis val þitt um sérsnið á Google-þjónustum
  • Þjónustuþætti sem fela ekki í sér gagnadeilingu

Gögnum frá þér úr öllum Google-þjónustum verður hugsanlega deilt áfram á milli allra þjónusta í ákveðnum tilgangi, óháð því hvort viðkomandi þjónustur eru tengdar. Þetta er t.d. gert til að koma í veg fyrir svindl, vernda þig gegn ruslefni og misnotkun og til að fylgja lögum.

Að auki; þegar tvær eða fleiri Google-þjónustur eru í boði saman, er líka hægt að deila gögnum frá þér á milli þessara þjónusta til að sinna hlutverki sem reiðir sig á báðar þessar þjónustur.

Ef þú velur að tengja enga þjónustu á listanum verða tilteknir eiginleikar viðkomandi Google-þjónusta sem tengjast deilingu gagna á milli Google-þjónusta takmarkaðir. Að öðru leyti hefur valið engin áhrif á þjónusturnar þínar. Ef þú hefur til dæmis kveikt á sérsniði þjónustu í gegnum persónuverndarstillingarnar þínar, en velur að tengja ekki viðkomandi þjónustu, verður þjónustan áfram sérsniðin, en aðeins út frá gögnum frá viðkomandi þjónustu.

Stjórn á tengdum þjónustum

Þú getur stjórnað valinu á Google-reikningnum þínum, til dæmis að tengja aðrar Google-þjónustur eða afturkallað samþykki þitt við tengdar þjónustur. Þú getur einnig stjórnað öðrum stillingum á Google-reikningnum þínum. Þar á meðal eru vef- og forritavirkni, YouTube-ferill og sérsniðnar auglýsingar.

Notkun persónuupplýsinga frá auglýsingasamstarfsaðilum okkar

Þegar þú notar auglýsingasamstarfsaðila okkar — vefsvæði, forrit og þjónustur sem nota auglýsingaverkfæri Google — þá getur verið að þú deilir persónuupplýsingum með slíkum fyrirtækjum og auglýsendum eða fyrirtækjum sem vinna fyrir þeirra hönd. Auglýsingasamstarfsaðilar okkar kunna að deila þessum gögnum með Google-þjónustum í auglýsingatilgangi í samræmi við reglur um samþykki notenda í Evrópusambandinu. Sjá persónuverndarstefnu okkar fyrir þær gerðir gagna sem auglýsingaþjónustur Google nota.

Ef þú ert með búsetu innan EES verða auglýsingasamstarfsaðilar okkar að hafa samþykki þitt til að deila persónuupplýsingum þínum með Google fyrir sérsniðnar auglýsingar og tilvik þar sem fótspor eða staðbundin geymsla er notuð. Auglýsendur mega nota samþykkisborða til að fá leyfi frá þér fyrir notkun á persónuupplýsingum þegar þú ert inni á vefsvæðum þeirra eða forritum en geta einnig fengið samþykki þitt með öðrum hætti, til dæmis með nýskráningu í tölvupósti.

Að auki geta auglýsendur valið tilteknar Google-þjónustur sem geta tekið á móti þeim persónuupplýsingum sem þú samþykkir að deila með Google í auglýsingatilgangi. Þegar valdar Google-þjónustur eru búnar að safna og vinna úr gögnum frá auglýsendum gilda viðkomandi þjónustustillingar Google.